Mikið álag er á teppum í skipum og er þess vegna mikilvægt að hreinsa teppin reglulega til að koma í veg fyrir slit vegna ágangs. Tvær aðferðir eru í boði, blauthreinsun og þurrhreinsun, og fer val hreinsiaðferðar eftir tegund á teppi og álagi. Einnig er stundum sett á óhreinindavörn á álagssvæði.
Teppa og húsgagnahreinsun í skipum
Teppahreinsun (blauthreinsun) – Hentar vel ef um mjög óhrein teppi er að ræða. Til að stutta þurrktíma er stundum notast við blásara.
Þurrteppahreinsun (yfirborðshreinsun) – Hentar vel við nokkrar aðstæður t.d. þar sem lausar teppaflísar eru. Algengt er að teppaflísar séu t.d. í stýrishúsum.
BG sér einnig um djúphreinsun á húsgögnum í skipum. Þar má nefna :
- Hreinsun á stólum
- Hreinsun á rúmdýnum
- Djúphreinsun á sófum
- Hreinsun á leðurhúsgögnum
- Hreinsun á húsgögnum í setustofum skipa
- Þrif á húsgögnum í matsal
- Djúphreinsun á húsgögnum í brú skipa