Hreingerningar eftir bruna í skipum

Hreingerningar eftir bruna í skipum eru oft stórmál.  Sót og reykur smýgur inn á flest rými og mikil brunalykt getur myndast sem stundum er vandasamt að losna við. Rétt viðbrögð og vinnubrögð skipta því miklu máli í eftirbrunahreingerningum. BG hefur áratugareynslu í hreinsunum á skipum eftir bruna og önnur tjón. Áhersla á lögð á góð viðbrögð, fljóta þjónustu og vönduð vinnubrögð. Minni verkefni vinnast oftast beint fyrir útgerðir eða skipaeigendur en stærri mál eru oftast unninn í samstarfi við tryggingafélög.  Áratuga reynsla og hátt þjónustustig.

Fjölbreytt heildarþjónusta eftir bruna:

  • Eftirbrunahreingerningar (alhreinsun) á innra rými skipa og vistarvera
  • Veggja- og loftþrif
  • Djúphreinsun á innbúi
  • Teppa- og húsgagnahreinsun
  • Gólfbónun
  • Hreinsun á dekkjum og vinnslusvæðum
  • Hreingerningar (hreinsanir) á vélarúmum í samráði við vélstjóra
  • Þurrísblástur á vélabúnaði þar sem það þarf
  • Hreinsun á raflögnum með þurrísblæstri
  • Sódablástur á svæðum sem þarf að undirbúa fyrir málningu
  • Háþrýstiþvottur eða lágþrýstiþvottur á þeim svæðum sem þarf
  • Alhreinsun á skipum af öllum stærðum og gerðum.
  • 25 ára reynsla og mikil þekking á þrifum í skipum.

 

Hafðu samband við BG og sjáðu hvernig við getum aðstoðað. Einnig er neyðarþjónusta í boði fyrir tryggingafélög og skipaeigendur.

Panta þjónustu

Hafðu samband