Vistarverur og sameiginleg rými í skipum verða fyrir miklu álagi og þurfa reglulega og ítarlega hreinsun. BG Skipahreinsun sér um djúphreinsun á vistarverum, eldhúsum, göngum, brúm og snyrtingum með áherslu á hreinlæti, heilnæmt umhverfi og vellíðan skipverja. Við hreinsum í krók og kima og getum einnig séð um þvott og hreinsun á rúmfatnaði í samstarfi við fagaðila.
Algeng verkefni við djúphreinsun í skipum
- Hreingerningar á eldhúsum í skipum
- Alþrif á búrum eldhúsa
- Hreingerning á veggjum og loftum í skipum
- Djúphreinsun og bónun á gólfum.
- Teppahreinsun.
- Mottuhreinsun.
- Hreingerningar á snyrtingum.
- Hreingerningar á göngum skipa og stigum.
- Djúphreinsun á stjórnherbergjum.
Hafðu samband við BG Skipahreinsun til að fá mat á umfangi verksins og tillögu að framkvæmd. Við skipuleggjum djúphreinsunina með hliðsjón af aðstæðum um borð, tímaáætlun skipsins og þeim rýmum sem þarf að hreinsa.
