BG tekur einnig að sér flóknari hreinsunarverkefni í skipum. Þjónusta þessi er yfirleitt framkvæmd með sérhæfðum tækjabúnaði. Áratuga reynsla BG í skipahreingerningum nýtist vel við þessar aðstæður.
Meðal tækniþrifa má nefna
- Hreingerningar í vélarúmum skipa og báta
- Lágþrýstihreinsun í vélarúmum
- Háþrýstiþvottur á skipsdekkjum
- Hreingerningar á stýrishúsum
- Þurríshreinsun
- Hreinsun á vélabúnaði á vinnslusvæðum
- Hreinsun á geymslusvæðum í skipum
- Sótthreingerningar og dauðhreinsun á ákveðnum svæðum í skipum
- Hreinsun með sódablæstri
- Alhreinsun á skipum eftir bruna
Hafðu þetta einfalt og láttu fagaðila um hreingerningarnar