BG hefur þjónustað tryggingafélög á þriðja áratug og hefur fyrirtækið unnið mikið fyrir öll tryggingafélög landsins. BG býður upp á neyðarþjónustu hvenær sem er sólarhringsins allan ársins hring í samvinnu og samkvæmt óskum og þörfum viðkomandi tryggingafélags.
- Algengustu verkefnin í tjónum eru meðal annars.
- Hreingerningar á skipum og bátum eftir bruna
- Hreingerningar á vélarúmum eftir bruna
- Hreingerningar eftir vatnstjón í skipum
- Hreinsun á viðkvæmum véla og tæknibúnaði í skipum
- Hreinsun á loftræstikerfum í skipum
- Hreinsun á vinnslusvæðum skipa
- Alhreinsun á skipum
- Þurríshreinsun á vélarúmum
BG hefur fjárfest í miklum sérhæfðum tæknibúnaði og sérfræðiþekkingu til að geta boðið upp á hraðar og fumlausar lausnir hverju sinni. Sérþjálfað og þaulreynt starfsfólk BG tryggir að verkin séu unnin skipulega og samkvæmt ströngum gæðakröfum BG.